|
![]() |
||||||||
|
|
Hringanóri er algengur allt í kringum Norðurpólinn enda hefur hann aðlagað sig vel að aðstæðum norðurhjarans og bera lífshættir hans þess merki. Kóparnir eru hvítir og vel búnir undir kulda og geta jafnvel þolað að fara í kaldan sjóinn ef hættu ber að garði. Urturnar kæpa í snjóhúsum á ísnum helst innanfjarða eins og á Grænlandi en þar eru þeir algengustu selirnir. Á veturna færir hann sig suður á bóginn og kemur þá meðal annars við á Íslandi. Dæmi eru um að hann safnist fyrir á norðurlandi í miklu magni svo að líkja má við árásir þó að ekki sé það algengt. Hringanórinn getur kafað eftir fæðu niður á 50 metra dýpi og verið í kafi í 20 mínútur en fæða hans eru krabbadýr og fiskur.
|