Length <3,8 m.
Weight <1500 kg.
Status Rare
Migrant Vagrant
Painting courtesy of.
Go to homepage.
Close window
Rostungar flækjast stundum til landsins en eru ekki hér að staðaldri. Sjaldnast sjást þeir við suðurströndina en í flestum öðrum landshlutum hafa þeir sést. Beinaleifar sem fundist hafa benda til þess að rostungar hafi jafnvel hafst við á vesturlandi en þær eru sumar mjög gamlar og þeir virðast hafa verið fágætir á þeim tíma síðan land byggðist. Skögultennur rostunga geta orðið allt að meters langar en þær nota þeir til að berjast með og einnig til að róta eftir lindýrum á botninum. Einn rostungur náði töluverðri upphefð og frægð hér á landi upp úr 1980 en það var enginn annar en Valli víðförli. Hann flæktist til Englands þar sem hann var fangaður og síðan var flogið með han til Íslands og honum loks sleppt við Grænland.